MariCell® Psoria

MariCell® Psoria

MariCell Psoria er íslenskt húðmeðhöndlunarefni þróað af Dr. Baldri Tuma Baldurssyni húðsjúkdómalækni og er framleitt á Ísafirði.
MariCell PSORIA er sérþróað til meðhöndlunar á þykkri og hreistraðri húð með einkennum psóríasis. MariCell Psoria inniheldur mOmega3® fjölómettaðar fitusýrur og byggir á íslenskri einkaleyfavarinni tækni.

MariCell Psoria fæst í apótekum á Íslandi.

MariCell™ Psoria inniheldur þrjú efni sem vinna saman að því að auka heilbrigði fylliefnisins í hyrnislaginu.

  • mOmega3™ sem unnið er úr sjávarfangi og inniheldur m.a. EPA og DHA fitursýrur sem húðin getur nýtt sér til að viðhalda heilbrigði fylliefnis húðarinnar.
  • Ávaxtasýra (5%) Ávaxtasýra sem mýkir efsta lag húðarinnar, flýtir fyrir húðflögnun og eykur gegndræpi húðarinnar þannig að mOmega3™ fitusýrur og karbamíð eiga auðveldara með að smjúga inn í húðina.
  • Karbamíð (5%) gefur húðinni raka og eykur vatnsbindigetu húðarinnar.

Reynslusögur notenda

Einar Örn Grétarsson hefur lengi glímt við Psoriasis. Þegar hann fór í nám til Svíðþjóðar urðu einkennin óbærileg vegna kulda og álags. Eftir að hafa borið MariCell Psoria á sig í tvo daga var hann orðinn eins og nýr.

Um MariCell Psoria

MariCell PSORIA er sérþróað til meðhöndlunar á þykkri og hreistraðri húð með einkennum psóríasis. MariCell Psoria inniheldur mOmega3® fjölómettaðar fitusýrur.

Hvað gerir MariCell Psoria?

  • Meðhöndlar hreistraða húð og einkenni sporiasis
  • Dregur úr kláða
  • Losar húðflögur
  • Er rakagefandi og eykur vatnsbindigetu húðarinnar

Notkun MariCell Psoria

  • Berið MariCell Psoria á kvölds og morgna á þann hluta húðar sem meðhöndla á.
  • Hentar til meðhöndlunar á þykkri og hreistraðri húð með kláða og psoriasis (með framangreindum einkennum).

Virkni MariCell Psoria

Psoria-Hornlag

1) Hyrnisfrumur 2) Millifrumufitysýrur EPA og DHA 3) Hornhúð

Efsta lag húðarinnar (hyrnislag) er búið til úr 15–20 lögum af frumum. Neðstu frumur húðarinnar eru lifandi, en eftir því sem ofar dregur þorna frumurnar, deyja og mynda hyrnislag. Á milli þurru frumnanna er fylliefni, sem er ríkt af fitusýrum. Fitusýrurnar halda hyrnislaginu mjúku og vatnsheldu. Við bólguástand eins og í psoriasis hrönglast hyrnisfrumurnar upp á yfirborðinu og mynda hreistur, einkum á álagsstöðum eins og hnjám og olnbogum. Hreistrið er laust í sér og styrkur efnanna i Psoria passar vel til að hreinsa það og mýkja án þess að erta.

Undir ákveðnum kringumstæðum rýrnar fylliefnið þannig að hyrnislagið opnast og hin lifandi húð missir frá sér raka sem getur t.d. valdið því að húðin bólgnar, þykkist og hreistur myndast. Viðbrögðin við þessu er að nýmyndun á hyrnislagi er gölluð og vítahringur húðþykkingar og hreisturmyndunnar hefst. mOmega3 fitusýrurnar endurmynda og styrkja fylliefnið milli frumnanna.

Psoria-dagur-1

Dagur 1

Psoria-dagur-31

Dagur 31

Myndirnar hér að ofan sýna árangurinn af notkun MariCell Psoria í 31 dag gegn slæmum einkennum Psoriasis á höndum. Viðkomandi hafði verið í öflugri lyfjameðferð og legið á sjúkrahúsi vegna sýkinga. Breytingin varð eftir MariCell Psoria var borið á tvisvar sinnum á dag.

MariCell Psoria eru án parabena, stera og vaxtarþátta.

Með ávísun læknis greiða Sjúkratryggingar Íslands hluta kostnaðarins.

mOmega3® tæknin

Efsta lag húðarinnar (hyrnislag) er búið til úr 15–20 lögum af frumum. Neðstu frumur húðarinnar eru lifandi, en eftir því sem ofar dregur þorna frumurnar, deyja og mynda hyrnislag. Á milli þurru frumnanna er fylliefni, sem er ríkt af fitusýrum. Fitusýrurnar halda hyrnislaginu mjúku og vatnsheldu. Undir ákveðnum kringumstæðum rýrnar fylliefnið þannig að hyrnislagið opnast og hin lifandi húð missir frá sér raka sem getur t.d. valdið því að húðin bólgnar, þykkist og hreistur myndast. Viðbrögðin við þessu er að nýmyndun á hyrnislagi er gölluð og vítahringur húðþykkingar og hreisturmyndunnar hefst. mOmega3 fitusýrurnar endurmynda og styrkja fylliefnið milli frumnanna.

Aðrar MariCell vörur

Maricell - Fótakrem - sprungnir hælar - húðvara

MariCell Footguard

Maricell, XMA, Exem, Exemkrem, krem

MariCell XMA

Maricell, Smooth, Húðnabbar, Inngróin hár, rakstursbólur

MariCell Smooth