MariCell™ XMA

sérþróað meðferðarkrem fyrir viðkvæma húð

MariCell XMA er sérþróað meðferðarkrem fyrir húð sem einkennist af roða, þurrki, ertingu eða mildum einkennum exems. XMA kremið er byggt á mOmega3™ fitusýrum úr fiski sem hjálpa til við að draga úr bólgum og róa viðkvæm svæði húðarinnar. Þegar kremið er borið reglulega á húðina verður hún mýkri, slaknar á ertingu og fær aukna fyllingu.

MariCell XMA kremið er steralaust krem sem er ætlað til að draga úr einkennum exems og ertingar í húð.

Hvað er Exem?

Exem er langvinnur húðsjúkdómur sem getur valdið kláða, roða, þurrki og sprungum í húð. Ofnæmisexem (e. atopic eczema) er algengasta form exems.

  • Paraffínolía og eucerin sem mynda rakahelda filmu og vernda húðina.
  • mOmega3™ fitusýra hjálpar við að róa bólgu og kláða.
  • Glyserín og mannósapólýmerar draga raka að húðinni og auka mýkt.
  • Mild rotvarnakerfi phenoxyethanóli og ethylhexylglycerini tryggir ferskleika án ilmefna.

Virkni mOmega3™ fitusýrunnar er að þétta húðina, en svokölluð exemhúð getur verið afar gisin sem gerir hana svona viðkvæma. Við reglulega notkun kremsins getur það hjálpað til við að laga bólgur, sefa ertingu og roða á byrjunarstigi og veitt húðinni raka auk þess sem það dregur úr kláða. XMA virkar mjög vel gegn þurrki þegar kólnar að vetri til.

Berið kremið kvölds og morgna á þurra eða viðkvæma húð. Nuddið varlega þar til það frásogast. XMA hentar allt árið þegar húð þarf aukna vernd og raka.

  • Notið ekki á sýkta eða rofna húð. Forðist að kremið komist í augu.
  • Notið ekki ef þú ert með ofnæmi fyrir innihaldsefnum.
  • Hættið notkun ef húð verður rauðari eða ef kláði eða óþægindi aukast.
  • Aðeins fyrir útvortis notkun.

Virkar og hreinar húðvörur

þróaðar af íslenskum húðlækni fyrir heilbrigðari húð.

Myndir sýna dæmi um verkun XMA. Seinni myndin er tekin eftir 30 daga notkun á XMA kreminu.

Fyrir
Eftir

Reynslusögur

Aðrar MariCell vörur

Hafa samband

Hefurðu einhverjar spurningar? Sendu okkur línu.

This field is for validation purposes and should be left unchanged.