MariCell Footguard er sérhannað fótakrem sem mýkir sigg, hjálpar við sprungna hæla og stuðlar að endurnýjun þykkrar húðar á iljum. Formúlan byggir á samspili vísinda og náttúru: lífvirk prótein, omega‑3 fitusýrur úr fiski og ávaxtasýrur vinna saman til að jafna húðina og veita henni styrk og mýkt.
Virkni Footguard er þríþætt, þar sem mOmega3 fitusýrurnar viðhalda heilbrigði ysta lags húðarinnar, karbamíð gefur húðinni raka og eykur vatnsbindigetu hennar, og ávaxtasýrur mýkja og fjarlægja ysta lag húðarinnar. Með þessari þríþættu virkni getur Footguard hjálpað til við að meðhöndla og fyrirbyggja sigg, þykka húð og sprungna hæla.